Listinn 2026

1. Þorbjörg Þorvaldsdóttir

Bæjarfulltrúi

Ég er Garðbæingur og grunnskólakennari, eiginkona Silju Ýrar S. Leifsdóttur og mamma tveggja skólastúlkna, sex og tíu ára. Ég hef búið víða þótt ég sé að mestu uppalin hér í bænum, en valdi að koma hingað aftur til þess að ala upp börnin mín. Ég hef búið á nokkrum stöðum í Garðabæ: í Kjarrmóum, Ásbrekku á Álftanesi, í Holtsbúð og í Þrastarlundi sem barn og unglingur. Á fullorðinsárum hef ég búið í Hrísmóum og nú í Löngumýri. Sem barn tók ég þátt í skátastarfi með Vífli, lærði á klarinett í Tónlistarskóla Garðabæjar og gekk í Hofsstaðaskóla. Á unglingsárunum æfði ég sund og gekk í Garðaskóla, en fór síðan í Menntaskólann í Reykjavík þaðan sem ég útskrifaðist af fornmáladeild.

Ég er málfræðingur, með BA í almennum málvísindum frá HÍ og MA í málvísindum frá Leiden University í Hollandi. Svo er ég líka íslenskukennari og hef lokið viðbótardiplómu til kennsluréttinda frá HÍ.

Ég er nýhætt störfum sem samskipta- og kynningarstjóri Samtakanna ’78, þar sem ég starfaði frá 2023. Á öðrum tímabilum lífs míns hef ég verið umsjónarkennari í grunnskóla, doktorsnemi, flugfreyja, starfað við aðhlynningu, verið barþjónn og unnið í gestamóttöku á hóteli. Ég hef alla tíð verið virk í félagsstörfum og sat m.a. í stjórn Samtakanna ‘78 árin 2018-2022, þar af þrjú ár sem formaður félagsins.

Ég hef mikinn áhuga á samfélaginu okkar, mannréttindum og félagsmálum. Þar fyrir utan hef ég áhuga á bókmenntum, poppmenningu og alþjóðastjórnmálum.

Ég hef setið í bæjarstjórn og bæjarráði á kjörtímabilinu, auk þess að vera nefndarmaður í velferðarráði.

Helstu áherslur:
Helstu áherslur mínar eru fjölbreyttar, öruggar og loftslagsvænar samgöngur, húsnæðisuppbygging fyrir alla hópa Garðbæinga, sérstaklega ungt fólk og tekjulægri hópa, og að Garðabær sýni samfélagsleg ábyrgð í velferðarþjónustu. Það eru spennandi tækifæri fyrir hendi í Garðabæ, við verðum að grípa þau!

2. Guðjón Pétur Lýðsson

Atvinnurekandi

3. Joanna Marcinkowska

Verkefnastjóri inngildingar

4. Finnur Jónsson

Umsjónarkennari

5. Baldur Ó. Svavarsson

Arkitekt

6. Harpa Grétarsdóttir

Verkefnastjóri

7. Maru Aleman

Ferðamálaráðgjafi og formaður W.O.M.E.N. in Iceland

8. Hannes Ingi Geirsson

Íþróttakennari

9. Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir

Fv. tónlistarskólastjóri

10. Askur Hrafn Hannesson

Frístundaleiðbeinandi og háskólanemi

11. Guðrún Elín Herbertsdóttir

Viðskiptafræðingur

12. Tómas Þór Jacobsen

Tómstunda- og félagsmálafræðingur

13. Ása Steinarsdóttir

Ferðaljósmyndari

14. Axel Jónsson

Matreiðslumaður og leiðbeinandi á leikskóla

15. Signý Hlíf Árnadóttir

Náms- og starfsráðgjafi

16. Stefán Daníel Jónsson

Lögfræðingur

17. Svanhvít Sigurjónsdóttir

Lífupplýsingafræðingur

18. Björn Gústav Jónsson

Háskólanemi

19. Kristín Helga Gunnarsdóttir

Rithöfundur

20. Óli Valur Ómarsson

Knattspyrnumaður

21. Brynja Guðmundsdóttir

Viðskiptafræðingur

22. Þorvaldur Þorsteinsson

Viðskiptafræðingur