Fyrsti fundur kjörtímabilsins


Fyrsti bæjarstjórnarfundur kjörtímabilsins var haldinn fimmtudaginn 4. júlí 2026. Fundinn sat Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans.

Kosið var í embætti og nefndir á fundinum, en Þorbjörg tekur sæti í bæjarráði og verður annar varaforseti bæjarstjórnar. Guðjón Pétur Lýðsson verður áheyrnarfulltrúi Garðabæjarlistans í skipulagsnefnd, Joanna Marcinkowska áheyrnarfulltrúi í velferðarráði og Finnur Jónsson áheyrnarfulltrúi í skólanefnd grunnskóla. Ríkey Jóna Eiríksdóttir verður áheyrnarfulltrúi okkar í yfirkjörstjórn Garðabæjar. Þá skipaði Garðabæjarlistinn Hörpu Grétarsdóttur í menningar- og safnanefnd, Sveinbjörgu Vilhjálmsdóttur í öldungaráð og Björn Gústav Jónsson í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks. 

Nefndaskipan mun svo breytast eftir tvö ár, að öllu óbreyttu. Staðan er nefnilega sú eftir kosningar að minnihluti bæjarstjórnar, sem samanstendur nú af þremur flokkum, þarf að skipta með sér einum nefndarmanni í fastanefndum bæjarins. Áheyrnarfulltrúar eru svo fyrir hendi í þremur nefndum auk bæjarráðs: skólanefnd grunnskóla, velferðarráði og skipulagsnefnd. 

Þorbjörg lagði á fundinum fram tillögu fyrir hönd minnihlutans um fjölgun áheyrnarfulltrúa í nefndum. Tillögunni var vísað til bæjarráðs, sem kemur saman í fyrsta sinn á þriðjudag. Í greinargerð tillögunnar segir meðal annars: Eins og staðan er núna eftir sveitarstjórnarkosningar 2026 deila þrír flokkar með sér einu sæti í hverri eftirfarandi fastanefnd í Garðabæ: íþrótta- og tómstundaráði, menningar- og safnanefnd, umhverfisnefnd og leikskólanefnd. Í þessar fastanefndir er ekki hægt að tilnefna áheyrnarfulltrúa. 

Núverandi fyrirkomulag býður upp á að umræður í fastanefndum bæjarins nái ekki til allra bæjarfulltrúa. Þess vegna teljum við, bæjarfulltrúar minnihlutans, afar mikilvægt að breytingarnar sem hér eru lagðar til nái fram að ganga. Með því að hafa áheyrnarfulltrúa í öllum fastanefndum er hægt að tryggja lýðræðislega aðkomu allra framboða að nefndum eins vel og mögulegt er, á þessu kjörtímabili og til framtíðar.

Önnur mál sem bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans ræddi á fundinum:

  • Fjallaði um sumaraukaopnun í sundlaugum Garðabæjar, og sagði m.a.: Ég hvet að sjálfsögðu öll þau sem stunda laugarnar bæði í Ásgarði og á Álftanesi til þess að nýta þessa tilraunaopnun á sunnudögum vel í sumar – og muna, á meðan þau njóta heilsueflingar og skjálausrar samveru, að þrýstingur frá íbúum – og flokkum í minnihluta – skilar árangri.
  • Lagði fram eftirfarandi bókun um ráðningu bæjarstjóra: Garðabæjarlistinn situr hjá við afgreiðslu þessa máls, þar sem við teljum að ráða eigi utanaðkomandi einstakling í starf bæjarstjóra. Okkur finnst eðlilegt að bæjarstjóri sé framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og fylgi stefnu bæjarstjórnar, en sitji ekki báðum megin borðsins.
  • Fjallaði um störf velferðarráðs á fyrra kjörtímabili og nefndi að mikilvægt sé að tiltekinn starfsmaður hafi formlegt umboð til þess að fylgja eftir vinnu við jafnréttisáætlun Garðabæjar. 
  • Lýsti yfir ánægju með viljayfirlýsingu um stofnun sérskóla á höfuðborgarsvæðinu og fjallaði um þá staðreynd að í Garðabæ eru engar sérdeildir starfræktar.
  • Brýndi fyrir bæjarstjórn að þótt mælingar á líðan barna í skólum í Garðabæ komi vel út verðum við alltaf að vera vakandi fyrir því hvar skóinn kreppir.

Viltu heyra í okkur, koma einhverju máli á framfæri eða taka þátt í starfinu? Endilega hafðu samband við stjórn Garðabæjarlistans á gbrlistinn@gmail.com, eða hafðu beint samband við oddvita í tölvupóstfangið thorbjorg.thorvaldsdottir@gardabaer.is.