Auðlesið mál

Velkomin í betri Garðabæ

Áherslur Garðabæjarlistans

Garðabæjarlistinn býður fram
í sveitarstjórnarkosningum árið 2026.

Við viljum betri Garðabæ.

Við viljum Garðabæ
þar sem fólk getur búið vel.

Við viljum Garðabæ
þar sem fólk fær góða þjónustu.

Við viljum Garðabæ
þar sem öll geta tekið þátt.

Við skiptum áherslum okkar í 3 hluta:

  1. Garðabær sem virkar.
  2. Garðabær sem styður.
  3. Garðabær sem eflir.

Garðabær sem virkar

Húsnæði og skipulag

Garðabær er góður staður til að búa á.

Garðabær hefur fallega náttúru.

Við viljum vernda náttúruna.

Við viljum líka að fleiri geti búið í Garðabæ.

Í dag er húsnæði oft of dýrt.

Þess vegna flytur ungt fólk oft úr Garðabæ.

Fólk með lágar tekjur á líka erfitt
með að finna húsnæði í Garðabæ.

Við viljum breyta þessu.

Við viljum að fólk á öllum aldri
geti búið í Garðabæ.

Við viljum:

  • Fleiri tegundir af húsnæði.
  • Fleiri litlar íbúðir.
  • Fleiri leiguíbúðir.
  • Fleiri kaupleiguíbúðir.
  • Fleiri félagslegar íbúðir.
  • Góð græn svæði.
  • Betra aðgengi að náttúru.
  • Betri loftgæði.
  • Minni hávaða frá umferð.
  • Öruggari og fallegri hverfi.

Félagslegt húsnæði er húsnæði
fyrir fólk sem þarf stuðning.

Við viljum að Garðabær kaupi
fleiri félagslegar íbúðir á hverju ári.

Við viljum stytta biðlista.

Við ætlum að:

  • Skipuleggja nýja byggð í Iðnbúð.
  • Skipuleggja nýja byggð í Smiðsbúð.
  • Skipuleggja nýja byggð í Gilsbúð.
  • Byggja smærri íbúðir þar sem það á við.
  • Skipuleggja íbúðir á Hofsstaðavelli.
  • Búa til gott leiksvæði á Hofsstaðavelli.
  • Gera betri stíg í kringum Arnarnes.
  • Bæta græn svæði.
  • Setja upp náttúrulegar varnir gegn hávaða.
  • Taka frá lóðir fyrir leigufélög
    sem vinna ekki í hagnaðarskyni.

Lýðræði

Lýðræði þýðir að fólk hefur áhrif.

Við viljum að íbúar hafi meiri áhrif
á ákvarðanir í Garðabæ.

Við viljum að Garðabær hlusti betur
á íbúa.

Við viljum líka að Garðabær hlusti betur
á fyrirtæki og fólk sem rekur eigin vinnu.

Við viljum:

  • Meira samtal við íbúa.
  • Meira samtal við fyrirtæki.
  • Skýrari upplýsingar frá bænum.
  • Betra aðgengi að upplýsingum.
  • Sterkari stjórnsýslu.
  • Minni þörf fyrir dýra aðkeypta þjónustu.
  • Meiri þekkingu innan bæjarins.
  • Fleiri raddir í samtali um bæinn.

Við ætlum að:

  • Stofna íbúaráð í hverfum Garðabæjar.
  • Tryggja að ólíkt fólk taki þátt í íbúaráðum.
  • Setja upp stafræna samráðsgátt.
  • Gera upplýsingar aðgengilegar á fleiri tungumálum.
  • Tengja samráð beint við ákvarðanir.
  • Setja skýrari reglur um svör við erindum frá íbúum.
  • Setja markmið um fjölbreytileika í ráðningum.

Samgöngur

Samgöngur eiga að vera öruggar.

Fólk á að komast auðveldlega
milli staða.

Það á að vera öruggt að ganga.

Það á að vera öruggt að hjóla.

Það á að vera öruggt að nota rafskútu.

Það á líka að vera öruggt að keyra bíl.

Við viljum að börn geti farið örugg
í skóla og tómstundir.

Við viljum að íbúar hafi raunverulegt val
um ferðamáta.

Við viljum:

  • Betri gangstéttir.
  • Öruggari götur.
  • Betra aðgengi fyrir fatlað fólk.
  • Betri hjólastíga.
  • Betri almenningssamgöngur.
  • Meiri áherslu á snjómokstur fyrir gangandi fólk.
  • Fleiri leiðir til að nota deilibíla.
  • Fleiri leiðir til að nota deilihjól.
  • Fleiri leiðir til að nota deilirafskútur.

Við ætlum að:

  • Gera stórátak í gangstéttum.
  • Viðhalda gangstéttum betur.
  • Setja upp yfirbyggð hjólastæði við skóla.
  • Setja upp yfirbyggð hjólastæði við íþróttahús.
  • Kaupa rafbíla fyrir bæinn.
  • Bjóða starfsfólki Garðabæjar samgöngustyrk.
  • Setja upp stöðvar fyrir deilirafskútur.
  • Gera nýja umferðaröryggisáætlun.
  • Lækka hraða á götum innan bæjarins.
  • Gera strætó ókeypis fyrir börn frá 12 til 16 ára.

Fjármál

Garðabær þarf að fara vel með peninga.

Peningar bæjarins eiga að nýtast íbúum.

Við viljum að fjármál bæjarins séu skýr.

Við viljum að fólk sjái
hvert peningarnir fara.

Við viljum:

  • Nota peninga bæjarins á ábyrgan hátt.
  • Styrkja grunnþjónustu.
  • Styrkja innviði.
  • Draga úr ójöfnuði.
  • Lækka þjónustugjöld eins mikið og hægt er.
  • Setja barnafjölskyldur í forgang.
  • Skoða áhrif fjármála á ólíka hópa.
  • Krefja ríkið um sanngjarnari stuðning
    við sveitarfélög.

Við ætlum að:

  • Tengja fjárhagsáætlanir við félagsleg markmið.
  • Skoða áhrif stórra útgjalda á jafnrétti.
  • Setja fram skýrar upplýsingar um fjármál.
  • Verja peningum í verkefni
    sem bæta líf íbúa til lengri tíma.
  • Tala skýrt við ríkið
    þegar ríkið setur ósanngjarnan kostnað á bæinn.

Atvinna

Það bætir lífsgæði
að geta unnið nálægt heimili sínu.

Garðabær á að vera góður staður
til að búa.

Garðabær á líka að vera góður staður
til að vinna.

Við viljum:

  • Fjölbreyttara atvinnulíf.
  • Fleiri störf í Garðabæ.
  • Meiri stuðning við ný fyrirtæki.
  • Betri aðstöðu fyrir einyrkja.
  • Betri aðstöðu fyrir frumkvöðla.
  • Betri aðstöðu fyrir lítil fyrirtæki.
  • Fleiri möguleika á fjarvinnu.
  • Meiri stuðning við græn störf.
  • Meiri stuðning við nýsköpun.

Einyrki er manneskja
sem vinnur sjálfstætt.

Frumkvöðull er manneskja
sem býr til nýja hugmynd
eða nýtt fyrirtæki.

Við ætlum að:

  • Finna húsnæði fyrir lítil fyrirtæki.
  • Finna húsnæði fyrir einyrkja.
  • Finna húsnæði fyrir frumkvöðla.
  • Gefa nýjum fyrirtækjum skýrar upplýsingar.
  • Skoða samvinnurými í Garðabæ.
  • Tala reglulega við atvinnulífið.
  • Vernda atvinnusvæði í bænum.
  • Byggja upp atvinnusvæði
    með góðu aðgengi og góðu umhverfi.

Garðabær sem styður

Jafnrétti og inngilding

Inngilding þýðir að fólk fær að taka þátt.

Inngilding þýðir líka
að fólk upplifir að það eigi heima í samfélaginu.

Við viljum Garðabæ
þar sem ólíkt fólk getur blómstrað.

Við viljum:

  • Skýra mannréttindastefnu.
  • Skýra inngildingarstefnu.
  • Mælanleg markmið.
  • Samráð við ólíka hópa.
  • Betra aðgengi í þjónustu.
  • Betra aðgengi að upplýsingum.
  • Betri móttöku fyrir nýja íbúa.
  • Meiri fræðslu fyrir starfsfólk bæjarins.
  • Meiri stuðning við skóla og íþróttafélög.
  • Vettvang fyrir hinsegin ungmenni.

Við ætlum að:

  • Ráða jafnréttisfulltrúa.
  • Skýra ábyrgð í jafnréttismálum.
  • Bjóða reglulega fræðslu.
  • Efla móttöku nýrra íbúa.
  • Vinna með sérfræðingum.
  • Vinna með félagasamtökum.
  • Vinna með notendum þjónustu.
  • Gera inngildingu að hluta af allri starfsemi bæjarins.
  • Bjóða áfram íslenskunámskeið fyrir starfsfólk bæjarins.

Eldra fólk

Eldra fólk á að geta lifað góðu lífi
í Garðabæ.

Eldra fólk á að fá virðingu.

Eldra fólk á að fá stuðning
til að lifa sjálfstæðu lífi.

Við viljum:

  • Skýrar upplýsingar um réttindi eldra fólks.
  • Betri ráðgjöf.
  • Hjálp við að nota tölvur og síma.
  • Fjölbreytt félagsstarf.
  • Minni einmanaleika.
  • Félagsaðstöðu í fleiri hverfum.
  • Betri heimaþjónustu.
  • Betra aðgengi að húsum.
  • Betra aðgengi að stígum.
  • Betra aðgengi að útivistarsvæðum.

Við ætlum að:

  • Bæta upplýsingar um þjónustu.
  • Styrkja félagsstarf um allan bæ.
  • Vinna með heilbrigðisþjónustu.
  • Vinna með félagasamtökum.
  • Setja upp félagsaðstöðu í Urriðaholti.
  • Koma á frístundastyrk fyrir eldri borgara.
  • Koma á frístundastyrk fyrir öryrkja.

Fatlað fólk

Fatlað fólk á að geta lifað sjálfstæðu lífi
í Garðabæ.

Fatlað fólk á að hafa val.

Fatlað fólk á að hafa fullt aðgengi
að samfélaginu.

Við viljum:

  • Raunverulegt val um búsetu.
  • Fleiri aðgengilegar íbúðir.
  • Enga biðlista.
  • Betri þjónustu.
  • Betra aðgengi að opinberum byggingum.
  • Betra aðgengi að samgöngum.
  • Betra aðgengi að stígum.
  • Betra aðgengi að útivistarsvæðum.
  • Skýrari upplýsingar um þjónustu.
  • Mikilvægar upplýsingar á auðlesnu máli.
  • Fleiri störf fyrir fatlað fólk.
  • Sveigjanleg störf.
  • Vinnu- og virkniúrræði í Garðabæ.

Vinnu- og virkniúrræði eru staðir
þar sem fólk fær stuðning
til að vinna eða taka þátt.

Við ætlum að:

  • Setja réttindi fatlaðs fólks í forgang.
  • Skoða biðlista.
  • Skoða hvaða þjónustu vantar.
  • Skoða hvaða húsnæði vantar.
  • Bæta upplýsingar um réttindi.
  • Gera Garðabæ að góðum vinnustað
    fyrir fatlað fólk.
  • Setja á fót vinnu- og virkniúrræði
    fyrir fatlað fólk í Garðabæ.

Íbúar með ólíkan menningar- og tungumálabakgrunn

Í Garðabæ býr fólk
með ólíkan bakgrunn.

Sumt fólk talar íslensku sem fyrsta mál.

Sumt fólk talar önnur tungumál.

Við viljum að öll geti tekið þátt
í samfélaginu.

Við viljum:

  • Skýrar upplýsingar frá bænum.
  • Upplýsingar á fleiri tungumálum
    þegar þess þarf.
  • Góða móttöku fyrir nýja íbúa.
  • Betri leiðsögn um þjónustu.
  • Betri upplýsingar fyrir foreldra.
  • Betri samskipti við skóla.
  • Fleiri tækifæri til að hitta fólk.
  • Minni félagslega einangrun.
  • Meiri fræðslu fyrir starfsfólk bæjarins.
  • Samráð við fólk
    sem hefur ekki íslensku sem fyrsta mál.
  • Öryggi og virðingu fyrir öll börn.

Við ætlum að:

  • Gera móttökuáætlun fyrir nýja íbúa.
  • Gera lykilupplýsingar einfaldari.
  • Þýða upplýsingar þegar þess þarf.
  • Efla samstarf skóla og félagsþjónustu.
  • Bjóða starfsfólki fræðslu.
  • Halda fjölskylduviðburði.
  • Halda tungumálakaffi.
  • Halda opið samráð.
  • Leita eftir skoðunum íbúa
    með ólíkan bakgrunn.

Barnafjölskyldur

Börn og ungmenni eru mikilvæg.

Garðabær á að vera góður staður
fyrir börn.

Garðabær á að vera góður staður
fyrir fjölskyldur.

Við viljum:

  • Lækka kostnað fyrir barnafjölskyldur.
  • Veita systkinaafslátt í tómstundum.
  • Styrkja íþróttastarf.
  • Styrkja æskulýðsstarf.
  • Innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
  • Hlustað betur á börn og ungmenni.
  • Auka umferðaröryggi barna.
  • Bjóða ókeypis hafragraut í skólum.
  • Létta undir með fjölskyldum
    yfir sumarið.

Við ætlum að:

  • Bjóða sumarfrístund í skólum.
  • Hafa bókasafnið opið á sunnudögum.
  • Lengja opnunartíma sundlauga um helgar.
  • Eldaðan mat í hverjum skóla og leikskóla.
  • Bjóða ókeypis hafragraut í skólum.
  • Kynna afslætti fyrir tekjulágar fjölskyldur.
  • Koma á systkinaafslætti.
  • Hækka hvatapeninga í 75.000 krónur.
  • Láta hvatapeninga hækka með verðlagi.

Lýðheilsa

Lýðheilsa fjallar um heilsu fólks
í samfélaginu.

Heilsa er bæði líkamleg og andleg.

Við viljum:

  • Gera heilsu að stórri áherslu.
  • Leggja áherslu á forvarnir.
  • Styðja við andlega líðan.
  • Draga úr einmanaleika.
  • Efla félagsstarf.
  • Efla staði þar sem fólk getur hist.

Við ætlum að:

  • Þjálfa starfsfólk í geðheilbrigðismálum.
  • Bjóða námskeið um heilsu.
  • Bjóða námskeið um uppeldi barna.
  • Bjóða námskeið um líðan.
  • Efla sundlaugar.
  • Efla bókasafn.
  • Efla félagsmiðstöðvar.
  • Setja fleiri bekki við gönguleiðir.

Garðabær sem eflir

Skólamál

Skólar eru eitt mikilvægasta verkefni bæjarins.

Börn eiga að læra í góðu umhverfi.

Börn eiga að leika í góðu umhverfi.

Starfsfólk skóla á líka að hafa gott vinnuumhverfi.

Við viljum:

  • Koma í veg fyrir myglu í skólum.
  • Koma í veg fyrir raka í skólum.
  • Stefna að gjaldfrjálsum leikskólum.
  • Styrkja þróunarstarf í skólum.
  • Halda í gott starfsfólk.
  • Kenna gagnrýna hugsun.
  • Kenna samkennd.
  • Byggja skóla í tæka tíð.
  • Byggja upp þekkingu á íslensku sem öðru máli.
  • Efla kynfræðslu.
  • Efla kynjafræði.
  • Hafa hátt hlutfall fagmenntaðs starfsfólks.

Við ætlum að:

  • Lækka leikskólagjöld í skrefum.
  • Endurmeta lokun leikskóla í dymbilviku.
  • Styðja kennslu í íslensku sem öðru máli.
  • Bæta starfsumhverfi í skólum.
  • Bjóða starfsfólki handleiðslu.
  • Gera reglulega viðhaldsáætlun fyrir skólahús.
  • Tala við skólasamfélagið um kynfræðslu.
  • Styðja skóla við að kenna lýðræði.
  • Styðja skóla við að kenna samkennd.

Íþróttir og tómstundir

Íþróttir og tómstundir skipta miklu máli.

Þær hjálpa börnum að líða vel.

Þær hjálpa börnum að eignast vini.

Við viljum að öll börn finni starf við hæfi.

Við viljum:

  • Styrkja íþróttafélög.
  • Styrkja æskulýðsstarf.
  • Horfa til lengri tíma.
  • Bjóða fjölbreytt starf.
  • Gera pláss fyrir öll börn.
  • Tryggja jafnræði milli félaga.
  • Tryggja aðgengi milli hverfa.
  • Auka þátttöku barna
    sem taka síður þátt í skipulögðu starfi.

Við ætlum að:

  • Setja á fót þróunarsjóð.
  • Leggja áherslu á inngildingu í sjóðnum.
  • Tryggja Karatefélagi Garðabæjar aðstöðu.
  • Semja við Golfklúbbinn Odd.
  • Veita systkinaafslátt.
  • Hækka hvatapeninga í 75.000 krónur.
  • Bjóða félögum fræðslu um jafnrétti.
  • Færa stærri íþróttagreinar Stjörnunnar
    á Miðgarðssvæðið.

Menning

Menning gerir bæinn skemmtilegri.

Menning bætir lífsgæði.

Við viljum öflugt menningarlíf
í öllum hlutum Garðabæjar.

Við viljum:

  • Byggja menningarmiðju við Garðatorg.
  • Hafa bókasafnið sem hjarta menningarmiðjunnar.
  • Efla Ungmennahúsið Torgið.
  • Gera Garðatorg grænna.
  • Halda fleiri viðburði.
  • Halda viðburði á Álftanesi.
  • Halda viðburði í Urriðaholti.
  • Halda fleiri markaði.
  • Halda fleiri listasýningar.
  • Hafa list sýnilegri í bænum.

Við ætlum að:

  • Hafa bókasafnið opið á sunnudögum.
  • Skipuleggja menningarmiðju.
  • Setja menningarmiðju á framkvæmdaáætlun.
  • Auka fjármagn til bókasafnsins.
  • Halda samkeppni um útilistaverk.

Umhverfi og náttúra

Náttúran í Garðabæ er mikilvæg.

Loftslagsmál eru mikilvæg.

Umhverfismál hafa áhrif á líf okkar
í dag og í framtíðinni.

Við viljum:

  • Gera Garðabæ leiðandi í loftslagsmálum.
  • Setja skýrari markmið.
  • Setja mælanleg markmið.
  • Minnka losun.
  • Taka tillit til náttúru í skipulagi.
  • Taka tillit til umhverfis í samgöngum.
  • Fjárfesta í grænum lausnum.
  • Minnka úrgang.
  • Auka endurnotkun.
  • Auka endurvinnslu.
  • Vernda vatn.
  • Vernda fjörur.
  • Vernda lífríki.
  • Vernda jarðminjar.

Við ætlum að:

  • Uppfæra loftslagsstefnu Garðabæjar reglulega.
  • Setja metnaðarfyllri markmið um minni losun.
  • Fræða íbúa um sjálfbærari neyslu.
  • Hvetja fyrirtæki til sjálfbærari neyslu.
  • Styrkja vernd náttúrunnar.
  • Bæta eftirlit með mengun í lækjum.
  • Bæta eftirlit með mengun við sjóinn.
  • Gefa íbúum skýrari upplýsingar um mengun.

Þetta viljum við

Við viljum Garðabæ
þar sem fólk getur búið vel.

Við viljum Garðabæ
þar sem börn fá góðan stuðning.

Við viljum Garðabæ
þar sem eldra fólk getur lifað sjálfstæðu lífi.

Við viljum Garðabæ
þar sem fatlað fólk hefur val og aðgengi.

Við viljum Garðabæ
þar sem fólk af ólíkum uppruna tekur þátt.

Við viljum Garðabæ
þar sem náttúran fær að njóta sín.

Við viljum Garðabæ
þar sem íbúar hafa áhrif.

Við viljum betri Garðabæ.