Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar:
Þegar ég var barn rétt fyrir aldamót lék ég mér stundum í móanum þar sem nú er Akrahverfið. Síðan þá hefur íbúafjöldi Garðabæjar ríflega tvöfaldast, bæði með sameiningu Garðabæjar og Álftaness og uppbyggingu nýrra hverfa. Fólk sem flytur í bæinn kemur alls staðar að, utan af landi, úr öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu eða erlendis frá. Sumt fólk er líka að flytja aftur í bæinn sinn, eftir að hafa byrjað búskap í öðru sveitarfélagi.
Sjálf flutti ég í bæinn átta ára gömul. Pabbi minn ólst sjálfur upp í Garðabæ frá 10 ára aldri, amma mín og afi byggðu sér heimili í Lundunum og langamma og langafi á Arnarnesi. Samt hefur mér ekkert alltaf fundist ég tilheyra í Garðabæ.
Það er lýðheilsumál að finnast maður tilheyra samfélaginu sem maður býr í. Vinur minn úr grunnskóla sagði við mig fyrir nokkrum árum: Ég bjóst aldrei við því að þú myndir setjast að í Garðabæ. Síðan þá hef ég oft velt því fyrir mér af hverju honum fannst það, af hverju hann taldi að samfélagið í Garðabæ væri ekki eftirsóknarvert fyrir mig og þá líka hvað það þýðir að tilheyra í Garðabæ.
Oft heyri ég fólk segja eitthvað á þessa leið: Já, já, ég er flutt í Garðabæ, ég er samt ekkert svona Garðbæingur-Garðbæingur. Mín spurning er: Hvað er það? Og skiptir það raunverulega einhverju máli? Við erum ekki öll rótgróin hérna, en við byggjum samt þetta samfélag saman. Það á að vera auðvelt að finna sér stað innan samfélagsins okkar, finna að maður tilheyri. Við getum verið Garðbæingar og Siglfirðingar, Garðbæingar og Grindvíkingar, Garðbæingar og Pólverjar – nú, eða Álftnesingar.
Margar af áherslum Garðabæjarlistans fyrir kosningarnar nú í vor snúast um nákvæmlega þetta: Að fleira fólk fái að tilheyra, að fleira fólk tengi við bæinn okkar. Að fleira fólk finni sér samfélag í bænum, hitti annað fólk og njóti þess sem bærinn hefur upp á að bjóða. Að öll börn og ungmenni geti notið þess að stunda íþróttir og tómstundir, að börnum sem skera sig úr fjöldanum líði vel í skólanum sínum, að fólk þurfi ekki að vera efnað til að koma sér upp heimili hérna. Ég vil að fólk viti að við erum fjölbreytt og finni að það er styrkur.
Ég vil að allt fólk upplifi að Garðabær sé sinn bær. Því við eigum hann öll saman.
Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Garðabæjarlistans X-G. Greinin birtist fyrst í Garðapóstinum 14. maí 2026.