Garðabær fyrir okkur öll – framtíðarsýn Garðabæjarlistans 2040

Guðjón Pétur Lýðsson skrifar:

Garðabær hefur á undanförnum árum vaxið mikið, en samhliða þeim vexti þarf að huga vel að uppbyggingu innviða. Við í Garðabæjarlistanum viljum vera á undan kúrfunni og horfa til framtíðar áður en öll hverfi bæjarins verða fullbyggð. Þar má nefna Hnoðraholtið, Setbergslandið og Garðaholtið sem stærstu uppbyggingarsvæðin, ásamt þéttingarreitum innan bæjarins.

Framtíðarsýn okkar fyrir Garðabæ byggir á jafnvægi – jafnvægi milli vaxtar og velferðar, og ekki síst að við byggjum hverfi sem höfða til ólíkra hópa samfélagsins. Við verðum að tryggja að sem flestir geti fundið sér stað í bænum okkar.

Skipulag og samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins eru lykillinn að þessari þróun. Með tilkomu borgarlínu og þeirri framtíðarsýn að setja Hafnarfjarðarveg í stokk opnast einstakt tækifæri til að endurmóta hjarta bæjarins. Þar getum við skapað verðmætt og lifandi byggingarland sem sameinar íbúðir, þjónustu og mannlíf: þéttari, grænni og mannvænni byggð þar sem fólk getur búið og starfað án þess að reiða sig eingöngu á einkabílinn.

Í þessu samhengi verða húsnæðismálin eitt stærsta verkefnið framundan. Í dag er hlutfall félagslegs húsnæðis og hagkvæmra íbúða of lágt miðað við íbúaþróun. Þetta hefur raunveruleg áhrif á ungt fólk, eldri borgara og tekjulægri fjölskyldur sem vilja setjast að í Garðabæ en finna sér ekki viðráðanlegt húsnæði. Til ársins 2040 þurfum við markvissa stefnu um fjölbreyttara húsnæði – fleiri litlar og hagkvæmar íbúðir, aukið framboð á leiguíbúðum á vegum óhagnaðardrifinna félaga, aukins félagslegs húsnæðis og betri nýtingu lands innan bæjarins.

Miðgarður og Stjarnan

Eitt mikilvægasta uppbyggingarverkefni bæjarins er Miðgarður. Við viljum klára þá uppbyggingu sem þar er hafin og skapa skýra miðstöð íþrótta í Garðabæ. Með ákvörðunum síðustu ára hefur starfsemi Stjörnunnar dreifst um allan bæ, með tilheyrandi óhagræði fyrir foreldra, iðkendur og félagið sjálft.

Við lítum á Stjörnuna sem eina heild. Þess vegna viljum við sameina starfsemina í Miðgarði með uppbyggingu handboltahallar, körfuboltahallar og fimleikasalar, auk nýs aðalvallar og æfingasvæða fyrir knattspyrnudeildina. Með þessu yrði til öflug miðstöð sem styrkir félagið og verður aðdráttarafl fyrir bæinn.

Fjármögnun þessa verkefnis verður tryggð með þróun Ásgarðsreitsins. Þar mun rísa þétt byggð í námunda við almenningssamgöngur, með öflugri nærþjónustu í heimsklassa – sundlaug, grunnskóla og endurnýttum fimleikasal sem breytt verður í glæsilega líkamsræktaraðstöðu. Þetta verður lifandi og eftirsótt hverfi sem tengist Ásunum, Fitjunum og Grundunum þegar nýtt byggingarland opnast með því að setja Hafnarfjarðarveg í stokk.

Álftanes – horfum fram á við

Mikil uppbygging á sér stað á Álftanesi. Þar verðum við að vera á undan kúrfunni. Fjölgun íbúa kallar á aukna þjónustu og sterkari innviði.

Stækkun grunnskólasvæðisins er nauðsynleg til að mæta framtíðarþörfum, og það sama á við um íþróttaaðstöðu. Með því að bæta við gervigrasvelli og hefja undirbúning að hálfu knatthúsi tryggjum við að börn og ungmenni hafi aðgang að góðri aðstöðu allt árið um kring.

Íþróttir og félagslíf eru hornsteinn Garðabæjar. Stjarnan og Álftanes eru stór hluti af sjálfsmynd bæjarins og því er mikilvægt að tryggja öflugt starf fyrir iðkendur á öllum aldri.

Garðabær árið 2040 á að vera samfélag sem við erum stolt af – opið, fjölbreytt og framsýnt. Samfélag þar sem við nýtum tækifærin sem felast í vexti, en gleymum aldrei því sem skiptir mestu máli: fólkinu sem hér býr.

Garðabær fyrir okkur öll verður ekki til af sjálfu sér – hann krefst skýrrar sýnar, hugrakkra ákvarðana og vilja til að hugsa lengra en til næstu ára.

Garðabæjarlistinn er skynsamt afl sem vill byggja upp samfélag fyrir okkur öll. Við óskum eftir ykkar stuðningi 16. maí.

Höfundur er varabæjarfulltrúi og skipar 2. sæti Garðabæjarlistans. Greinin birtist í Garðapóstinum 7. maí 2026.