Hvatapeningar: Garðabæjarlistinn nær árangri fyrir barnafjölskyldur

Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar:

Íslenska forvarnarmódelið snýst um að halda börnum og ungmennum innan skipulagðra tómstunda sem allra lengst. Árlega ver Garðabær hundruðum milljóna í rekstur á íþróttamannvirkjum og tónlistarskóla, auk þess að gera samstarfssamninga við félög í bænum sem bjóða upp á skipulagt starf fyrir börn og ungmenni. Samfélagslegur ávinningur af þessum fjárfestingum er ótvíræður, en á sama tíma er fjöldi heimila að sligast undan gjöldum vegna tómstunda barna sinna. Það er einfaldlega ekki sjálfgefið að öll börn geti stundað íþróttir og tómstundir í Garðabæ. 

Garðabæjarlistinn hefur á kjörtímabilinu unnið ötullega að því í minnihluta bæjarstjórnar Garðabæjar að þrýsta á um betri kjör barnafjölskyldna í Garðabæ. Meðal annars höfum við leitt umræðuna í bæjarstjórn um hækkun hvatapeninga ár eftir ár. 

Hækkanir hvatapeninga

Strax eftir kosningar árið 2022 lagði Garðabæjarlistinn til að hvatapeningar yrðu hækkaðir úr 50 í 75 þúsund krónur og að þeir fylgdu framvegis verðlagsþróun frá ári til árs. Skýrsla um ólíkar leiðir til þess að létta undir með fjölskyldum vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna var svo unnin á vegum íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar eftir tillögu Garðabæjarlistans á árinu 2023. Við lögðum fram aðra tillögu í bæjarstjórn um hækkun hvatapeninga haustið 2024 og bókuðum loks enn aftur í fundargerð um nauðsyn þess að hækka þá í aðdraganda nýjustu fjárhagsáætlunar bæjarins sem afgreidd var nú fyrir jól. Með öðrum orðum: Við höfum haldið meirihlutanum við efnið allt kjörtímabilið. 

Þess má geta að Garðabæjarlistinn er eini flokkurinn í minnihluta sem hefur lagt fram beinar tillögur um hækkanir á hvatapeningum.

Pressan, bæði frá okkur og frá íbúum, ber árangur. Meirihlutinn hefur hækkað hvatapeninga í skrefum á kjörtímabilinu, en nú standa þeir í 67 þúsund krónum á hvert barn á ári. Þeir hafa þar með fylgt verðlagi í grófum dráttum frá árinu 2022 skv. verðlagsreiknivél. Einnig hefur verið komið á 15 þúsund króna viðbótarhvatapeningum fyrir tekjulægri heimili. Hefði fyrsta tillaga Garðabæjarlistans á kjörtimabilinu aftur á móti verið samþykkt árið 2022 stæðu hvatapeningar nú í 99 þúsund krónum fyrir hvert barn á ári.

Hvað með fjölgreina- og systkinaafslátt?

Á dögunum var skrifað undir samstarfssamning Garðabæjar við Stjörnuna, stærsta íþróttafélagið í bænum, þar sem tímabundið viðbótarframlag er veitt til þróunar á fjölgreinaafslætti innan félagsins. Þetta er mjög jákvætt skref að okkar mati, en betur má ef duga skal. 

Málflutningur meirihlutans í tengslum við systkina- og fjölgreinaafslátt hefur almennt verið í þá átt að félögin verði að fá að ráða þessum hlutum, þar sem það snúist um rekstur þeirra. Þess vegna leggur Garðabæjarlistinn til að bærinn axli sjálfur ábyrgð – og innleiði systkinaafslátt í gegnum hvatapeningakerfið sjálft. Það mun skipta mjög miklu máli fyrir fjölskyldur í bænum. 

Öll börn eiga að geta stundað skipulagt íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf að eigin vali. Þannig nýtum við þá innviði sem við höfum byggt upp í Garðabæ – og fylgjum eftir þeirri sýn sem hefur gert Ísland að leiðandi ríki í forvarnarmálum. Garðabæjarlistinn hefur sýnt það í verki allt kjörtímabilið að okkur er treystandi í málefnum barnafjölskyldna og að við náum árangri fyrir fólkið í bænum. Við óskum eftir atkvæði bæjarbúa þann 16. maí til þess að halda því áfram. 

Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Garðabæjarlistans. Greinin birtist í Garðapósti 7. maí 2026.