Categories
Fréttir

Mitt heimili, mín rödd

/English version below/

/Tekst po polsku znajduje się poniżej/

Joanna Marcinkowska skrifar:

Ég fæddist ekki í Garðabæ. En það er hér sem ég hef byggt mitt líf. Fyrir mig skiptir það meira máli en hvar maður er fæddur. Heimili er ekki bara staður sem maður endar á. Heimili er staður sem maður velur, mótar og byggir upp dag frá degi. Fyrir mig er Garðabær sá staður.

Hér hef ég búið í yfir 20 ár, eða frá því ég flutti til Íslands. Hér hef ég alið upp börnin mín. Hér hef ég séð þau vaxa upp, eignast vini, ganga í skóla, leika sér og verða hluti af samfélagi sem varð líka mitt.

Kannski þekkja mig ekki margir, og það er eðlilegt. En flest þekkjum við þá þörf að búa á stað þar sem maður finnur fyrir öryggi, virðingu og að tilheyra. Það er ekki sjálfgefið. Þess vegna skiptir okkur miklu hvernig samfélag við byggjum.

Ég býð mig fram í sveitarstjórnarkosningum því mér er umhugað um hvernig bæjarfélag Garðabær er og hvernig bæjarfélagið getur orðið. Ég vil að hér sé gott að ala upp börn, gott að eldast, gott að setjast að og gott að taka þátt í samfélaginu. Ég vil að fólk finni að það hafi vægi, hvort sem það hefur búið hér alla ævi eða er nýkomið. Ég vil að Garðabær sé bæjarfélag sem sér fólk, hlustar á ólíkar raddir og skapar raunverulegt rými fyrir alla til að taka þátt.

Í starfi mínu hef ég lagt sérstaka áherslu á inngildingu. Þar hef ég séð aftur og aftur hvað það hefur mikil áhrif þegar fólk upplifir að það sé velkomið, að á það sé hlustað og að reynsla þess skipti raunverulega einhverju. Samfélög verða sterkari þegar fleiri finna að þau eigi þar heima. Það er nálgun sem ég vil líka sjá skýrar í bæjarmálum. Að við horfum ekki bara á kerfin, heldur líka á fólkið sem býr innan þeirra.

Kannski horfi ég á þetta aðeins öðrum augum en sumir. Ég er pólsk, flutti til Íslands og valdi Garðabæ sem minn stað. Ég veit hvernig það er að koma inn í nýtt samfélag og líka hvernig það er að festa rætur, byggja upp líf, tengsl og heimili. Sú reynsla hefur kennt mér að tilfinningin fyrir því að tilheyra verður ekki til af sjálfu sér. Hana þarf að skapa með viðhorfum, ákvörðunum og því hvernig við komum fram hvert við annað.

Þess vegna langar mig að sjá Garðabæ vera meira en bara vel rekið sveitarfélag. Ég vil leggja mitt af mörkum til að Garðabær verði áfram hlýlegt samfélag þar sem allir finna að þeir skipta máli. Þar sem fjölbreytileiki er ekki bara orð í stefnuskjali heldur raunverulegur styrkur. Þar sem við spyrjum ekki bara hvað hentar flestum, heldur líka hverjir sitja eftir og hvað við getum gert betur.

Ég trúi því að sveitarfélag geti haft raunveruleg áhrif á líf fólks. Ekki með stórum orðum heldur með ákvörðunum sem snerta daglegt líf. Bæjarmál snúast ekki bara um framkvæmdir, tölur og skipulag. Þau snúast um börnin okkar og barnabörn, fjölskyldur sem reyna að láta allt ganga upp, eldri íbúa sem eiga skilið öryggi og virðingu, og alla þá sem vilja finna að þeir hafi rödd í sínu nærumhverfi. Ég býð mig fram í sveitarstjórnarkosningum af því að mér er ekki sama. Ég vil leggja mitt af mörkum og ég trúi því að reynsla mín, bæði persónuleg og fagleg, geti nýst. Garðabær hefur gefið mér og fjölskyldu minni mikið. Nú langar mig að gefa eitthvað til baka.

XG

Höfundur skipar 3. sæti á lista Garðabæjarlistans í Garðabæ.


English

My Home, My Voice

I was not born in Garðabær. But this is where I have built my life. To me, that matters more than where a person was born. Home is not just a place you end up. Home is a place you choose, shape, and build day by day. For me, Garðabær is that place.

I have lived here for over 20 years, ever since I moved to Iceland. I have raised my children here. I have watched them grow up, make friends, go to school, play, and become part of a community that also became mine.

Perhaps not many people know me, and that is natural. But most of us know the need to live in a place where we feel safe, respected, and that we belong. That is not something we can take for granted. That is why it matters so much what kind of community we build.

I am running in the municipal elections because I care about what kind of town Garðabær is, and what kind of town it can become. I want this to be a good place to raise children, grow older, settle, and take part in the community. I want people to feel that they matter, whether they have lived here all their lives or have only recently arrived. I want Garðabær to be a town that sees people, listens to different voices, and creates real space for everyone to participate.

In my work, I have placed particular emphasis on inclusion. Again and again, I have seen how much it matters when people feel welcome, are listened to, and have their experiences truly valued. Communities become stronger when more people feel that they belong. That is an approach I would also like to see more clearly reflected in local politics: that we look not only at the systems, but also at the people who live within them.

Perhaps I see this from a slightly different perspective than some others. I am Polish, I moved to Iceland, and I chose Garðabær as my place. I know what it is like to enter a new community and to put down roots, build a life, create connections, and make a home. That experience has taught me that a sense of belonging does not happen by itself. It has to be created through attitudes, decisions, and the way we treat one another.

That is why I would like to see Garðabær be more than just a well-run municipality. I want to help Garðabær remain a warm community where everyone feels they matter. A place where diversity is not just a word in a policy document, but a real strength. A place where we do not only ask what works for the majority, but also who is being left behind and what we can do better.

I believe that a municipality can have a real impact on people’s lives. Not through grand words, but through decisions that affect everyday life. Local politics is not only about construction projects, figures, and planning. It is about our children and grandchildren, families trying to make everything work, older residents who deserve security and respect, and everyone who wants to feel that they have a voice in their local community.

I am running in the municipal elections because I care. I want to contribute, and I believe that my experience, both personal and professional, can be useful. Garðabær has given my family and me a great deal. Now I would like to give something back.

The author is in third place on Garðabæjarlistinn’s candidate list in Garðabær.


Garðabær — miejsce, które wybrałam

Nie urodziłam się w Garðabær. Ale to tutaj zbudowałam swoje życie. Dla mnie ma to większe znaczenie niż miejsce urodzenia. Dom to nie tylko miejsce, do którego się trafia.Dom to miejsce, które się wybiera, kształtuje i buduje dzień po dniu. Dla mnie takim miejscem jest Garðabær.

Mieszkam tu od ponad 20 lat, od kiedy przeprowadziłam się do Islandii. Tutaj wychowałam moje dzieci. Tutaj patrzyłam, jak dorastają, nawiązują przyjaźnie, chodzą do szkoły, bawią się i stają się częścią społeczności, która stała się także moją społecznością.

Być może niewiele osób mnie zna i jest to naturalne. Ale większość z nas zna potrzebę, aby miejsce, w którym mieszkamy, dawało nam poczucie bezpieczeństwa, szacunku i poczucia przynależności. To nie jest oczywiste. Dlatego tak ważne jest, jaką społeczność budujemy.

Kandyduję w wyborach samorządowych, ponieważ zależy mi na tym, jakim miastem jest Garðabær i jakim miastem może się stać. Chcę, aby było to dobre miejsce do wychowywania dzieci, dobre miejsce do życia na każdym etapie, dobre miejsce do osiedlenia się i dobre miejsce do uczestniczenia w życiu społeczności. Chcę, aby mieszkańcy czuli się ważni, niezależnie od tego, czy mieszkają tu całe życie, czy dopiero niedawno się tu przeprowadzili. Chcę, aby Garðabær było miastem, które dostrzega ludzi, słucha różnych głosów i tworzy prawdziwą przestrzeń, w której wszyscy mogą uczestniczyć.

W swojej pracy szczególny nacisk kładę na inkluzję. Wielokrotnie widziałam, jak ważne jest to, by mieszkańcy czuli się zauważeni, wysłuchani i traktowani jako ważna część wspólnoty. Społeczności stają się silniejsze, kiedy więcej osób czuje, że jest u siebie. To podejście chciałabym także wyraźniej widzieć w sprawach lokalnych: abyśmy pamiętali, że za każdą decyzją, procedurą i systemem stoją konkretne osoby.

Być może patrzę na to trochę inaczej. Jestem Polką, przeprowadziłam się do Islandii i wybrałam Garðabær jako swoje miejsce. Wiem, jak to jest wejść do nowej społeczności, ale wiem też, jak to jest zapuścić korzenie, budować życie, relacje i dom. To doświadczenie nauczyło mnie, że poczucie przynależności nie powstaje samo z siebie. Trzeba je tworzyć poprzez postawy, decyzje i sposób, w jaki traktujemy siebie nawzajem.

Dlatego chciałabym, aby Garðabær było czymś więcej niż tylko dobrze zarządzaną gminą. Chcę wnieść swój wkład w to, aby Garðabær pozostało ciepłą społecznością, w której wszyscy czują, że są ważni. Miejscem, gdzie różnorodność nie jest tylko słowem w dokumencie strategicznym, lecz prawdziwą siłą. Miejscem, gdzie nie pytamy wyłącznie o to, co odpowiada większości, ale także o to, kto jest pomijany i co możemy zrobić lepiej.

Wierzę, że gmina może mieć realny wpływ na życie mieszkańców. Nie poprzez wielkie słowa, lecz poprzez decyzje, które dotyczą codziennego życia. Sprawy lokalne to nie tylko inwestycje, liczby i planowanie. To nasze dzieci i wnuki, rodziny, które próbują związać koniec z końcem, starsi mieszkańcy, którzy zasługują na bezpieczeństwo i szacunek, oraz wszyscy ci, którzy chcą czuć, że mogą mieć wpływ na kształt swojego najbliższego otoczenia.

Kandyduję w wyborach samorządowych, ponieważ nie jest mi wszystko jedno. Chcę wnieść swój wkład i wierzę, że moje doświadczenie, zarówno osobiste, jak i zawodowe, może się przydać. Garðabær dało mi i mojej rodzinie bardzo wiele. Teraz ja chciałabym dać coś od siebie.

Autorka zajmuje trzecie miejsce na liście Garðabæjarlistinn w Garðabær.

Categories
Fréttir

Velkomin í betri Garðabæ

Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar:

Garðabæjarlistinn hlaut 20.9% atkvæða í síðustu kosningum og tvo bæjarfulltrúa. Við höfum tekið það traust sem okkur var sýnt fyrir fjórum árum alvarlega allt kjörtímabilið. Sem stærsti flokkurinn í minnihluta höfum við látið til okkar taka í bæjarstjórn og veitt Sjálfstæðisflokknum öflugt aðhald. Við höfum ýtt við breytingum á ótal málum og eftir okkur liggur fjöldi bókana og tillagna. 

Garðabæjarlistinn hefur barist fyrir hækkun hvatapeninga fyrir hverja einustu fjárhagsáætlun, alltaf talað fyrir lækkun kostnaðar fyrir barnafjölskyldur, fyrir því að Garðabær axli ábyrgð sína er varðar uppbyggingu félagslegs húsnæðis, fyrir auknum almenningssamgöngum og fjölbreyttum ferðamátum og húsnæðiskostum. Við lögðum til ávaxtastund í grunnskólum og seinkun skólabyrjunar í unglingadeild. Við lögðum til að starfsfólk Garðabæjar fengi frítt í sund. Við stóðum vaktina og þrýstum á um fullkomið gagnsæi og festu þegar mygla fannst í nær öllum skólum Garðabæjar í upphafi kjörtímabils. Nýsamþykkt hjólreiðastefna Garðabæjar byggir á okkar tillögu. Fyrirhuguð lækkun umferðarhraða víða í bænum byggir á okkar tillögu. Þá hafa mál líkt og breytingarnar á starfsumhverfi leikskóla og skipulag í kringum fyrirhugaðan íbúðakjarna fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti tekið jákvæðum breytingum í meðförum nefnda vegna okkar íhlutunar. Við höfum svo að sjálfsögðu tekið þátt í sameiginlegum tillögum og bókunum bæjarstjórnar og tekið undir þær tillögur annarra flokka sem okkur þykja til þess fallnar að bæta bæjarfélagið okkar. Garðabæjarlistinn hefur sinnt hlutverki sínu af ábyrgð og sanngirni. 

Nú líður aftur að kosningum og Garðabæjarlistinn hefur sett saman ítarlega málefnaskrá sem við munum kynna og ræða við fólkið í bænum á næstu vikum. Þau mál sem við viljum vekja sérstaka áherslu á eru eftirfarandi:

Við ætlum að gera stórátak í uppbyggingu og viðhaldi gangstétta og göngustíga í eldri hverfum Garðabæjar. 

Það er mikilvægt að við komumst öll með öruggum hætti um bæinn okkar. Víða í Garðabæ eru gangstéttar úr sér gengnar, of mjóar, þær hætta skyndilega á furðulegum stöðum eða vantar hreinlega – með tilheyrandi áhrifum á aðgengi og öryggi fólks sem gengur um bæinn. Úr þessu ætlum við bæta með markvissum hætti á næsta kjörtímabili. 

Við ætlum að hafa bókasafn Garðabæjar opið á sunnudögum og lengja opnunartíma sundlauganna í Ásgarði og á Álftanesi um helgar. 

Almenningsrými þar sem fólk kemur saman utan heimilis, skóla eða vinnu eru afar mikilvæg fyrir hvert samfélag. Bókasafnið og sundlaugarnar stuðla að betri andlegri, félagslegri og líkamlegri heilsu fólks á öllum aldri og vinna gegn einmanaleika. Garðabæjarlistinn ætlar að auka þjónustu við íbúa og gera þessi rými aðgengilegri.  

Við ætlum að hverfa frá útboði skólamáltíða.  

Suma þætti í rekstri bæjarfélags er eðlilegt að bjóða út. Maturinn sem börnin okkar borða á hverjum degi er ekki einn þeirra. Garðabæjarlistinn vill að hollur og ferskur matur verði eldaður í hverjum skóla og leikskóla, þannig að bærinn hafi betri stjórn á gæðum matarins.

Við ætlum að hækka hvatapeninga í 75 þúsund kr. og veita systkinaafslátt í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi í gegnum hvatapeningakerfið. 

Of mörg heimili í Garðabæ eru að sligast undan kostnaði vegna tómstunda barna. Á sama tíma ver bærinn milljörðum í að byggja upp og reka aðstöðu fyrir barna- og ungmennastarf. Öll börn í Garðabæ eiga að geta notið þessara gæða – óháð efnahag og stöðu foreldra. Garðabæjarlistinn vill nýta hvatapeningakerfið til þess að styðja við barnmargar fjölskyldur og hækka upphæðina myndarlega til þess að styðja við þátttöku barna í skipulögðu starfi, enda er slík þátttaka ein grunnforsenda íslenska forvarnarmódelsins. 

Við ætlum að setja á fót þróunarsjóð íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsmála, með áherslu á inngildingu og að halda ungmennum lengur í skipulögðu starfi. 

Börn hætta gjarnan í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi þegar líður á unglingsárin. Sumir hópar barna hafa svo takmarkað aðgengi að skipulögðu starfi eða upplifa sig ekki velkomin, t.d. fötluð börn, hinsegin börn og börn innflytjenda. Gegn þessu viljum við vinna í samstarfi við félögin í bænum með því að setja á fót þróunarsjóð sem þau geta sótt í árlega. 

Við ætlum að reisa öflugt menningarhús – menningarmiðju – við eða nálægt Garðatorgi, með Bókasafn Garðabæjar sem kjarnastarfsemi.

Öflugt menningarlíf er einkenni sterks samfélags. Það er löngu kominn tími á að menningu í Garðabæ sé lyft á hærra stig með aðgengilegu og áberandi menningarhúsi, þar sem kynslóðir Garðbæinga geta komið saman og notið fjölbreyttrar menningar. Bókasafn Garðabæjar er tilvalið sem kjarnastarfsemi í húsið, enda þarf það nútímalegt húsnæði svo það geti fylgt þróun almenningsbókasafna á heimsvísu. 

Við ætlum að skipuleggja blandaða byggð í Iðnbúð, Smiðsbúð og Gilsbúð. 

Iðnaðarhverfið í búðunum er barn síns tíma. Þar er kominn tími til þess að skipuleggja aðlaðandi hverfi, þar sem litlar íbúðir sem henta þörfum bæði yngra og eldra fólks geta risið – með fyrirtækjum og verslunum á neðstu hæðum. 

Við ætlum að gera malbikaðan útivistarstíg í kringum Arnarnesið.

Allir Garðbæingar eiga að geta notið strandlengjunnar við Arnarnes. Það er löngu kominn tími til þess að gera þar útivistarstíg sem getur þjónað öllum bæjarbúum. 

Málefnaskrá Garðabæjarlistans fyrir kosningarnar í vor snýst í heild sinni um samfélag sem eflir, styður og einfaldlega virkar betur. Við erum óháður flokkur með skýrt erindi: Við viljum byggja upp Garðabæ þar sem allt fólk getur fundið sína fjöl, þar sem við getum öll tilheyrt og blómstrað. Það er löngu tímabært að sá hluti bæjarbúa sem er ekki í Sjálfstæðisflokknum haldi á dagskrárvaldinu hér í bænum. Við höfum sýnt það með okkar framgöngu á undanförnum árum að Garðabæjarlistinn er tilbúinn í verkefnið. Við óskum eftir ykkar stuðningi 16. maí og hlökkum til að bjóða ykkur velkomin í betri Garðabæ – fyrir okkur öll. 

Þorbjörg Þorvaldsdóttir,
bæjarfulltrúi og oddviti Garðabæjarlistans

Greinin birtist fyrst í Garðapóstinum 15. apríl sl.