Categories
Fréttir

ERU SJÁLFSTÆÐISMENN AÐ SIGLA Í STRAND?

Áhugavert verður að fylgjast með viðbrögðum sjálfstæðismanna í Garðabæ, nú þegar spáð er samdrætti í efnahagslífinu á sama tíma og meirihlutinn í bæjarstjórn leggur í afar fjárfrekar framkvæmdir þar sem ekkert má til spara. Allt er það undir þverrandi góðærinu komið

Nú þegar hefur verið ráðinn sérfræðingur í úttekt á stjórnsýslunni og hans verkefni er að finna peninga, eða öllu heldur hvernig megi verja fjármunum bæjarins betur. Það eitt og sér vekur eftirtekt þar sem sjálfstæðismenn hafa hingað til stært sig af því að vera eitt best rekna sveitarfélagið á landinu. Er farið að hrikta í undirstöðum þeirra fullyrðinga?

Verður aðkeypt félagsleg þjónusta mögulega talin óþarfleg eyðsla á fjármunum? Mun úttektin sýna að það hefði mögulega verið betri stjórnsýsla og ábyrgari rekstur að gera eins og flest önnur sveitarfélög og fjárfesta í innviðum jafnt og þétt til að tryggja lögbundna kjarnaþjónustu, í stað þess að senda þá sem hana þurfa hreinlega annað og borga fyrir það meira en góðu hófi gegnir?

Það kostar nefnilega þegar til lengri tíma er litið að fjárfesta aldrei í innviðum, grunnstoðum sem bera uppi heilt sveitarfélag. Nú er mögulega komið að skuldadögum.

Hvernig sjálfstæðismenn ætla að koma sér í gegnum þetta kjörtímabil án vandræða er erfitt að sjá. Garðabæjarlistinn stendur vaktina og heldur bæjarbúum vel upplýstum, því ekki gerir meirihlutinn það, eins og dæmin sanna. Fáir höfðu áttað sig á þeim gríðarlegu útgjöldum sem einn fundasalur hafði í för með sér enda aldrei sett utan um þá framkvæmd áætlun sem unnið skyldi eftir. Meirihlutinn einfaldlega jós peningum, hátt í hálfum milljarði, í framkvæmdina jafnóðum og þurfa þótti.

Í dag hefur meirihlutinn þegar tekið há lán, samtals um einn milljarð króna, til þess að standa undir byggingu Urriðaholtsskóla og fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýrinni. Fjármögnunina átti að leysa einhvern tímann í framtíðinni, m.a. með sölu á lóðum þar í kring. Það þætti einhverjum háskalegt að stóla á opinn tékka framtíðarinnar. Spár taka sífelldum breytingum og við búum við viðkvæmt efnahagslíf sem á það til að taka dýfur með tilheyrandi kostnaði. Það er því óábyrgt að æða af stað með tryggingu í ef-inu og voninni þegar um svo mikla fjármuni er að ræða. Fjölnota íþróttahúsið eitt kostar að minnsta kosti 5 milljarða króna.
Og enginn er aurinn í kassanum.
Við í Garðabæjarlistanum munum fylgjast vel með hvernig sjálfstæðismenn ætla að viðhalda heimatilbúinni trú sinni á að aðalsmerki þeirra sé ábyrg fjármálastjórn.

Categories
Fréttir

JAFNRÉTTISMÁLIN OG GARÐABÆR

Jafnréttisáætlun Garðabæjar er nú til endurskoðunar og af því tilefni lagði ég fram tvær tillögur á fyrsta fundi bæjarstjórnar eftir sumarleyfi. Önnur varðar endurskoðunina sjálfa og hin ráðningu í stöðu jafnréttisfulltrúa.

Í jafnréttisáætlunum birtast áherslur hvers tíma og því um að ræða lifandi plagg sem fer fyrir nefnd fjölskylduráðs til reglulegrar endurskoðunar. Áður fór reyndar jafnréttis- og mannréttindanefnd með það verkefni, en meirihlutinn kaus að leggja nefndina niður við upphaf kjörtímabilsins.

Jafnréttisáætlun endurspeglar tíðarandann og um leið varpar hún ljósi á afstöðu þeirra sem leggja línurnar. Okkur í Garðabæjarlistanum finnst mikilvægt og nauðsynlegt að gera ákveðnar breytingar á framsetningu áætlunarinnar, til að draga fram alla hópa samfélagsins og tryggja þeim pláss. Við viljum vekja athygli á þeim þáttum sem mikilvægt er að horfa til frá degi til dags í öllum verkefnum stjórnsýslunnar.

Í núverandi stefnu eru einstaka hópar ekki nefndir og skortir því verulega á skýra sýn sveitarfélagsins í málefnum þeirra. Þar má nefna hinsegin fólk. Í áætluninni er ekkert að finna um hvernig beri að mæta þeim hópi sérstaklega. Sama gildir um fatlað fólk og ekki má gleyma að huga að mismunandi stöðu fólks eftir aldri, litarhætti eða þjóðerni, svo eitthvað sé nefnt.

Við í Garðabæjarlistanum teljum rétt að draga fram það sem þegar er gert af metnaði í sveitarfélaginu okkar, svo íbúar sjái skýrt hvernig samfélagið tekur utan um ólíka hópa og sýnir þeim öllum virðingu. Við eigum að láta þá sýn ná til allra og þar er rétt að horfa til þeirra hópa sem lög um jafnrétti tiltaka sérstaklega. Sýnileikinn og skráðar reglur skipta máli og setja okkur þann ramma sem unnið skal eftir. Ef sýnin er óskýr og ramminn of almennt orðaður er hætta á að okkur yfirsjáist mikilvægir þættir. Málefni sem snerta okkur ekki beint verða þá útundan. Þess vegna þurfum við skýra og afdráttarlausa stefnu og henni þarf að fylgja aðgerðaráætlun svo jafnréttisáherslurnar verði markvissar og áþreifanlegar.

Okkur á það til að þykja jafnréttismál léttvægur málaflokkur en svo er svo sannarlega ekki. Flest stærri sveitarfélög hafa yfir að ráða jafnréttisfulltrúa einmitt til þess að tryggja yfirsýn og eftirfylgni með smáum sem stórum málum sem varða jafnrétti í sinni víðustu mynd. Mismunun getur leynst víða án þess að við áttum okkur endilega á því án fyrirhafnar. Meirihlutinn hafnar þessu og felldi tillögu okkar um að ráða í stöðu jafnréttisfulltrúa þrátt fyrir að í útgefnu efni um jafnréttismál sé t.d. varað við að fella jafnréttismál undir aðrar nefndir eindregið hvatt til þess að málaflokkurinn sé gerður sýnilegur með sérstökum umsjónaraðila til að styðja við og fylgja eftir.

Með von í hjarta förum við inn í haustið og tökum þátt í endurskoðun jafnréttistefnu Garðabæjar og leggjum okkar áherslur fram á sama tíma og landsþing Jafnréttisráðs fer fram í okkar góða bæ.

Categories
Fréttir

TILLAGA UM AÐ BOÐIÐ VERÐI UPP Á MORGUNHRESSINGU Í GRUNNSKÓLUM BÆJARINS.

Ingvar Arnarson lagði fram eftirfarandi tillögu á bæjarstjórnarfundi 19.september.

Tillaga Garðabæjarlistans um að boðið verði upp á morgunhressingu/hafragraut og ávexti/grænmeti í nestistíma í grunnskólum bæjarins.

Bæjarstjórn samþykkir að boðið verði upp á morgunhressingu/hafragraut áður en skólastarf hefst á morgnana og að ávextir og grænmeti verði í boði í nestistíma fyrir grunnskólabörn í Garðabæ.

Greinagerð

Flestir þekkja mikilvægi þess að borða morgunmat. Með því að tryggja aðgengi allra barna að morgunhressingu/hafragraut áður en skólastarf hefst á morgnana, stuðlar Garðabær sem sveitarfélag að hollri og næringaríkri næringu í byrjun dags hjá börnum og ungmennum sem er í takti við innleiðingu samnings um heilsueflandi samfélag. Samningur sem var undirritaður fyrir margt löngu. Eins er mikilvægt að börn fái holla næringu yfir daginn og því gott að bjóða upp á ávexti og grænmeti í nestistíma

Bæjarstjórn samþykkti að vísa tillögunni til skólanefndar sem og leikskólanefndar til frekari umfjöllunar.

Categories
Fréttir

FJÁR­HAGS­Á­ÆTLUNAR­GERÐIN OG LÝЭRÆÐI SJÁLF­STÆÐIS­MANNA Í GARÐA­BÆ

Sara Dögg skrifaði grein um vinnulag meirihlutans í Garðabæ þegar kemur að fjárhagsáætlunargerð

“Gerð fjárhagsáætlunar fyrir sveitarfélagið er eitt af stærstu verkefnum bæjarstjórnar Garðabæjar. Í fjárhagsáætlun felast ákvarðanir sem hafa áhrif á alla bæjarbúa með mismunandi hætti. Við í Garðabæjarlistanum hófumst handa í fyrra haust full eftirvæntingar og bjartsýni um að það þætti ekki annað en sjálfsagt að leggja af stað í slíka vinnu með samvinnu allra kjörinna fulltrúa. Þeirra fulltrúa sem bæjarbúar kusu til að fara með hagsmuni sína.

Fulltrúar minnihlutans fengu einn fund með fjármálastjóra og bæjarstjóra um fyrirhugaða áætlun. Áætlun sem meirihlutinn var búinn að stilla upp eftir sínu höfði. Því fór sem fór. Við fulltrúar Garðabæjarlistans samþykktum ekki fjárhagsáætlun enda birti hún ekkert af okkar sýn til verkefnanna eða forgangsröðunar fjármuna í þágu íbúa.

Nú hefst önnur umferð og við mætum bjartsýn til leiks. Fylgjumst með vinnulagi annarra sveitarfélaga þar sem lögð er sérstök áhersla á samráð og samtal um þá áætlun sem lögð verður fram. Jú, við sjáum glitta í lýðræðið handan við hornið í Garðabænum. Rétt svo. Pínulítið framfara skref frá fyrra fari. Nú verður samráðið með þeim hætti að fundurinn sem náðist í gegn í fyrra verður haldinn fyrr, sem vekur von um að núna verði ekki búið að niðurnjörva alla hluti áður en við fáum að kynna okkur þá. Hitt sem við fögnum hins vegar mjög er að í fyrsta skipti er í ferli þessarar mikilvægu vinnu er staður og stund fyrir pólitíska umræðu inn í nefndum sviðanna um forgangsröðun verkefna. Þótt umræðan komi inn á lokametrum vinnunnar þá fögnum við nýju stefi í vinnulagið. Það er nýtt og fagnaðarefni.

Þannig virkar lýðræðið og þannig eflum við ekki síður meðvitund okkar allra á rekstri sveitarfélagsins. Umfangi verkefnanna og þeirrar sýnar sem ákvarðanirnar lýsa.

Við höldum af stað borubrött með okkar tillögur í farteskinu, komum þeim inn í umræðuna í bæjarráði og bæjarstjórn næstu vikurnar og virkjum þannig lýðræðið á meðan valið stendur ekki um annað.

Categories
Fréttir

ÁRSREIKNINGUR TIL GAGNS?

Í bæjarstjórn Garðabæjar erum við á milli umræða um ársreikning sveitarfélagsins. Ársreikningur ársins 2019 birtir áður þekkta stöðu. Meirihlutinn heldur sínu striki virðist gera sér það að leik að vanáætla tekjur hvar sem hægt er að koma því við. Þegar tekjurnar reynast svo, fyrirsjáanlega, töluvert hærri en áætlað var í ákveðnum liðum slær meirihutinn sér á brjóst og hælir sér af góðum rekstri og ábyrgri fjármálastjórn.

Við skoðun ársreikningsins vakna spurningar um ákveðna þætti og þær höfum við lagt fram fyrir hönd Garðabæjarlistans. Meginstef þeirra er mikilvægi gagnsærrar stjórnsýslu og ábyrgrar áætlunargerðar. Þegar tekjur eru kerfisbundið vanáætlaðar förum við á mis við þann lærdóm að meta  innri og ytri áhrif tekna bæjarsjóðs sem er mikilvægasti lærdómurinn til þess að geta tekist á við skyndilegar og ófyrirsjánlegar aðstæður. Fjárhagsáætlunin er tæki til skilvirks rekstrar, ekki gerviplagg til að gera meirihlutanum kleift að hreykja sér af rekstrarsnilld. Fyrir utan þessa kerfisbundnu vanáætlun væri eðlilegt að ársreikningurinn sýndi skýra og sundurliðaða framsetningu á launagreiðslum  bæjarstjóra og bæjarfulltrúa, svo dæmi sé tekið, enda um miklar fjárhæðir að ræða og þykir til siðs hjá öðrum sveitarfélögum.

Gagnsæi er gríðarlega mikilvægt aðhaldstæki í stjórnsýslu. Enn eitt dæmi um skort á slíku varðar upplýsingar um tengda aðila. Garðabær skilgreinir bæjarfulltrúa og maka þeirra sem tengda aðila að rekstri bæjarins, en undanskilur bæjarstjóra og aðra prókúruhafa sveitarfélagsins. Það gengur þvert gegn tilgangi skilgreiningar á tengdum aðilum. Hvers vegna nær gagnsæið ekki til allra? Ræður pólitíkin þar för, fremur en krafa um gagnsæi?

Við í Garðabæjarlistanum köllum áfram eftir meira gagnsæi, skýrari upplýsingagjöf og nákvæmari fjárhagsáætlun til að skapa sem allra réttasta mynd af stöðu sveitarfélagsins hverju sinni og frammistöðu meirihlutans við fjármálastýringu.

Staðreyndin er sú, að þegar markvisst er vanáætlað þá er hægt að breiða yfir aðra þætti eins og sívaxandi skuldasöfnun á hvern íbúa, litla fjárfestingu í innviðum þegar kemur að félagsþjónustu, uppbyggingu félagslegs húsnæðis eða bættri þjónustu og íbúðaformi fatlaðs fólks. Lítið sem ekkert saxast á biðlista eftir félagslegu húsnæði og talið gott og gilt þar sem biðtími er ekki lengri í Garðabæ en í Reykjavík. Það þykir árangur í herbúðum meirihlutans. En er það mælikvarðinn sem íbúar Garðabæjar sætta sig við?

Nú erum við í aðstæðum sem ekkert okkar hefur upplifað áður og ljóst að þar mun reyna mikið á samfélag okkar. Það kreppir að og Garðabær, eins og öll önnur sveitarfélög, verður að gera allt sem í valdi bæjarfélagsins stendur til þess að styðja við grunnþjónustu. Við þurfum að tryggja afkomu íbúanna, sem horfa fram á tekjumissi og jafnvel atvinnuleysi og við þurfum að tryggja rekstrarhæfni fyrirtækja. Augljóslega þarf að leggja mikla áherslu á að þeir sem minna mega sín fái alvöru viðspyrnu. Öllu skiptir að innviðirnir séu traustir. Fjárfesting í innviðum hefur verið ein megináhersla okkar í Garðabæjarlistanum frá upphafi. Við munum kalla eftir því að fjárfestingarþörf sveitarfélagsins verði metin og greind, í innviðum, félagslegu húsnæði, skólahúsnæði og íþróttahúsnæði og um leið fagna öllum skrefum sem meirihlutanum hugnast í þeim efnum til að halda uppi atvinnustigi og bæta þjónustu við alla íbúa.